Mannlíf

Gönguferð um völlinn í tilefni Jarðvangsviku
Úr íbúð kanans.
Föstudagur 29. maí 2015 kl. 11:44

Gönguferð um völlinn í tilefni Jarðvangsviku

Íbúð kanans og Kadeco bjóða upp á létta morgungöngu um gamla varnarsvæðið að Ásbrú laugardaginn 30. maí kl. 10:00 í tilefni jarðvangsviku á Reykjanesi.

Sagt verður frá lífinu á „vellinum“ þegar svæðið var í umsjón Bandaríkjahers.

Gengið verður frá Eldey frumkvöðlasetri, Grænásbraut 506, og endað í Íbúð kanans sem er sýning er veitir innsýn í hversdagslífið á NASKEF.

Leiðsögumaður verður Eysteinn Eyjólfsson.

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024