HSS
HSS

Mannlíf

Miðvikudagur 11. júlí 2001 kl. 10:31

Góður afli vestur á ströndum

Þegar blaðamaður VF var á bryggjurúntinum í Sandgerði sl. mánudag voru bræðurnir Kristjón og Þórður Guðmannssynir í óða önn að landa úr trillunni sinni, Æsu. Æsa er 6 tonna trilla og Guðmundur Knútsson er meðeigandi bræðranna.
„Við fengum 1800 kíló í dag sem er þokkalegur afli“, segir Kristjón og brosir út í annað en undanfarið hafa þeir verið að fá 1300-1400 kíló. Þórður er í óða önn að ísa fiskinn og Kristjón vippar sér skyndilega niður í trillu. Blaðamaður lætur í ljós áhuga á að fá frekari upplýsingar um veiðarnar en Þórður er tregur til svars og bendir á bróður sinn. Kristjón er þar með orðinn fjölmiðlafulltrúi útgerðarinnar.
„Við fengum þetta vestur á ströndunum, en ég veit nú ekki hvort það segi fólki nokkuð. Jú, kannski trillukörlunum“, kallar Kristjón neðan úr trillunni. „Þetta er mest þorskur. Alveg ágætis fiskur sem fer beint á markaðinn.“
Bílakjarninn
Bílakjarninn