Bílakjarninn hekla
Bílakjarninn hekla

Mannlíf

Góðir gestir heimsóttu Njarðvíkurskóla
Miðvikudagur 10. október 2018 kl. 09:00

Góðir gestir heimsóttu Njarðvíkurskóla

Ragnar Þór Pétursson, formaður Kennarasambandsins kom færandi hendi í Njarðvíkurskóla nýlega og bauð starfsfólki skólans upp á köku í tilefni dags kennarans. Ragnar er fyrrum nemandi skólans og Njarðvíkingar voru ánægðir með að fá hann í heimsókn í sinn gamla skóla á þessum degi.  
„Við vorum með starfsdag þennan dag og höfðum fengið til okkar fræðslu um bekkjarfundi og það var líka fyrrverandi nemandi skólans, Sigríður Ingadóttir, sem kom og var  með þá fræðslu en hún vinnur hjá Miðstöð skólaþróunar á Akureyri.  Alltaf gaman að fá fyrrum nemendur til okkar þó ólíkar ástæður hafi legið að baki,“ ssagði Ásgerður Þorgeirsdóttir,
skólastjóri Njarðvíkurskóla.

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024