Reykjanesbær 3-6 sept
Reykjanesbær 3-6 sept

Mannlíf

Góðgerðartónleikar unglingaráðs til styrktar Minningarsjóðs Ölla í kvöld
Miðvikudagur 4. mars 2020 kl. 10:21

Góðgerðartónleikar unglingaráðs til styrktar Minningarsjóðs Ölla í kvöld

Í kvöld, miðvikudagskvöldið 4. mars, mun Unglingaráð Fjörheima halda Góðgerðartónleika í Hljómahöll til styrktar Minningarsjóðs Ölla. Tónleikarnir verða frá klukkan 20:00-22:00 en húsið opnar klukkan 19:00. Miðaverð á viðburðinn eru 3.000 krónur.

Þeir tónlistarmenn sem munu stíga á svið eru Valdimar Guðmundsson ásamt Ásgeiri Aðalsteinssyni gítarleikara, Már Gunnarsson, Ísold Wilberg, Hljómsveitin Demo, Frid og Sesselja Ósk Stefánsdóttir.

Optical Studio 15, 18, 20, 22, 25, 27, 29. ágúst 1-6 sept karl
Optical Studio 15, 18, 20, 22, 25, 27, 29. ágúst 1-6 sept karl

Unglingaráð Fjörheima samanstendur af ungum og öflugum ungmennum í 8.-10. bekk í Reykjanesbæ en hlutverk þeirra er að skipuleggja dagskrá, halda viðburði og taka þátt ýmsum öðrum störfum sem snerta félagsmiðstöðina.

Minningarsjóður Ölla styrkir börn til íþróttaiðkunar sem ekki eiga kost á því vegna bágrar fjárhagsstöðu foreldra eða umsjónarmanna.

Allur ágóði viðburðarins rennur til Minningarsjóðs Ölla en unglingaráðið kaus að styrkja þennan tiltekna sjóð því þau telja íþróttir- og tómstundarstarf sé góð forvörn fyrir ungmenni.

Reykjanes Optikk ljósan25
Reykjanes Optikk ljósan25