Bygg
Bygg

Mannlíf

Þriðjudagur 25. september 2001 kl. 09:31

Góð verðlaun í fjölskylduleik á Ljósanótt

Bókasafn Reykjanesbæjar, Byggðasafn Suðurnesja og menningarfulltrúi Reykjanesbæjar efndu til menningarratleiks á Ljósanótt til að kynna og vekja athygli á menningarhúsum og listarverkum í bæjarfélaginu.
Tvær leiðir voru í boði, önnur um Keflavíkurhverfið fyrir þá sem voru gangandi og hin um Reykjanesbæ fyrir þá sem voru akandi. Þátttakendur fengu blað í hendur við upphaf leiksins og á því voru vísbendingar, spurningar og kort af bænum. Rétt svör við spurningunum mynduðu svo lausnarorðið í leiknum. Þátttaka í leiknum var heldur dræm enda mikið framboð að áhugaverðum atburðum og sýningum þennan menningardag.
Dregið var úr réttum lausnum og
þeir heppnu fengu bókina „Saga listarinnar“ eftir E. H. Gombrich sem viðurkenningu fyrir þátttökuna. Verðlaunin voru afhent á bókasafninu fimmtudaginn 20. september s.l. og komu í hlut Guðlaugar Pálsdóttur og fjölskyldu og Erlu Drafnar Vilbergsdóttur og fjölskyldu.
Bílakjarninn
Bílakjarninn