Góð aðsókn að Litlu gjörningahátíðinni
Litla Gjörningahátíðin í Vogum sem haldin var í fyrsta sinn dagana 15.-16. október síðastliðinn heppnaðist vel. Hátíð var á vegum menningarverkefnisins Hlöðunnar.
Meðal þeirra sem komu fram á hátíðinni voru finnski listamaðurinn Essi Kausalainen og þeir Áki Ásgeirsson, Halldór Úlfarsson og Páll Ivan Pálsson.
Hátíðin mæltist vel fyrir bæði hjá Vogabúum og nágrönnum og var mjög vel sótt. Stefnt er að því að gera hátíðina að árvissum viðburði.
Laugardaginn 4. desember verður framhald á vinsælum sveitamarkaði Hlöðunnar sem haldinn var þann 11. september síðastliðinn en ætlunin er að bjóða upp á jólalegar sultur, smákökur, danska lifrakæfu og annað matarkyns ásamt handverki.
--
Mynd - Áki Ásgeirsson, Halldór Úlfarsson og Páll Ivan Pálsson flytja gjörningin Bíltúr Jeppi föstudaginn 15. október sl. Verkið var opnunarverk Litlu Gjörningahátíðarinnar.