Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Mannlíf

Gleðilegt hár
Eva Björk er nýlega komin frá London þar sem hún skoðaði hvað er og verður í tísku í hárgreiðslum og klippingum.
Laugardagur 17. desember 2016 kl. 04:00

Gleðilegt hár

Hártískan yfir hátíðarnar samkvæmt Evu Björk

Það virðist mikið í gangi í hártískunni um þessar mundir ef marka má hárgreiðslumeistarann Evu Björk Sigfúsdóttur sem rekur hárgreiðsluna Háráttu við Hafnargötu í Reykjanesbæ. Hún fór yfir það helsta í tískunni núna fyrir jólin og á komandi misserum. Hjá ungum dömum er mikið um toppa og nokkuð djarfa liti á meðan strákarnir greiða aftur eða til hliðar og eru með snúð margir hverjir.

„Að mínu mati er fólk farið að hugsa yfir höfuð betur um hárið á sér en áður. Nú höfum við tækifæri til að nota hreinni, náttúrulegri vörur og fjölbreyttar mótunarvörur. Alls kyns blásara og járn sem gefa okkur möguleika á að skarta fallegum lokkum án of mikillar fyrirhafnar.
Ammoníaks-fríir litir hafa rutt sér til rúms og fólk vill upp til hópa hafa náttúrulegt fallega útlítandi hár sem auðvelt er að hrista og renna fingrunum í gegnum. Hár sem geislar af heilbrigði án geymslu og aukaefna. Fyrir þá sem fíla þurrara, grófara útlit eru til alls kyns mótunarefni til að ná fram þeirri útkomu sem óskað er eftir. Að vissu leiti er pönk, diskó og rokk ríkjandi í tísku á klæðnaði og hári, frelsi til að túlka eigin stíl,“ segir Eva.

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024

Stuttir skornir toppar eru eldheitir

Hjá dömunum er ég sjálf mikið að vinna með rótarskugga, náttúrulegar litasamsetningar og að ógleymdu „balayage“ sem lýsa og skyggja hárið í hinum ýmsu útfærslum.
Skærir, djafir litir í hluta af hárinu eru heitir núna, einnig mjúkir jarðlitir, perluljóst, grá/öskutónar og strípur með náttúrulegu flæði. Dömur eru líka að taka áhættu og eru djarfar, stuttar, grófar klippingar, mjúkir látlausir toppar og stuttir skornir toppar eldheitir á komandi misserum, axlasíddin og aðeins síðara, mjúkar styttur, alls konar fléttur og undirklipping (undercut) sem þýðir í raun að hárið er klippt ótengt (disconnected). Litlar krullur, stórar krullur, krumpur og  slétt og fallega blásið með flottri lyftingu, hreyfingu og jafnvel svolítið matt við sérstök tilefni. Auðvitað er sítt, fallegt hár líka frábært, með smá hreyfingu og látlausum topp sem hægt er að færa til eftir skapi allt frá hlið, miðju eða beint fram.

Fjölbreytt hjá strákunum

Herrarnir eru fjölbreyttir og frábærir! Rolling stones, Jimi Hendrix og Bítlarnir eru áhrifavaldar um þessar mundir. Krullur eru mjög ríkjandi hjá herrum á næstu misserum og spái ég jafnvel mikilli aukningu í sjálfliðun (permanent). Beinir og jafnvel saxaðir toppar, „punk streetlook“ og vel rakað í „húðhverfu“ (skinfaid). Margir eru greiddir aftur eða til hliðar. Strákarnir pæla mikið í hárinu á sér og velja sér fleiri vörur en gömlu, góðu geltúpuna. Enn aðrir leita í létta náttúrulega, „laid back“ lúkkið. Aðrir halda því síðu og flétta eða gera snúð, jafnvel bæði sem er líka mjög skemmtilegt.