Glæsileg sýning úr safni Heimis
Glæsileg ný sýning um Heimi Stígsson, ljósmyndara var opnuð í Bíósal Duushúsa í gær, á fæðingardegi Heimis sem hefði orðið áttræður í gærdag.
Ljósmyndararnir Oddgeir Karlsson og Sólveig Þórðardóttir völdu myndir úr safni Heimis til sýningar með áherslu á sjöunda áratuginn og upphaf þess áttunda. Safn hans er í eigu Byggðasafns Reykjanesbæjar og er það mikilvægur heimildabanki um sögu og menningu svæðisins á ofanveðri 20. öld. Á sýningunni eru 99 útprentaðar myndir og að auki eru 500 aðrar myndir á tölvuskjá í sýningarrýminu. Eftir Heimi liggja um 300.000 ljósmyndir en hann var starfandi ljósmyndari á Suðurnesjum í um fjóra áratugi.
Heimir Stígsson (17.10.1933 – 12.08.2009) rak ljósmyndastofu í Keflavík frá 1961 og fram undir aldamótin síðustu. Eftir hann liggur mikið magn mynda af margvíslegum toga, bæði teknar á stofunni og bæjarlífsmyndir.
Sýningin stendur til 22. desember og er opin virka daga frá kl. 12-17 og um helgar frá kl. 13-17 og aðgangur er ókeypis.
Fjölmargir gestir voru við opnun sýningarinnar. VF-myndir: Hilmar Bragi Bárðarson