Glæsileg hönnun í anddyri Höfuðborgarstofu
Á vegum Reykjaness jarðvangs og Maris, hönnunarklasi Suðurnesja.
Reykjanes jarðvangur og Maris, hönnunarklasi Suðurnesja, hafa undanfarið kynnt fjölbreytta hönnun sem sprottin er upp úr kraftmiklu landslagi suður með sjó, í anddyri Höfuðborgarstofu. Fatnaður, skart og textíll er meðal þess sem hönnuðir Maris hafa kynnt, en um er að ræða Rúnar frá Keflavík, Mýr design, Elísabetu Ásberg, Höllu Ben, Agnesi, Flingur, MeMe, Ljósberann, Magdalenu Sirrý, Heklæði, Hildi Harðar, Steinunni Guðna, Fjólu og Sigríði Erlu Jónsdóttur.
Víkurfréttir litu við á kynningunni og smelltu af nokkrum myndum af glæsilegri hönnun Suðurnesjafólks.
Sýningin er studd af Markaðsstofu Reykjaness, Heklunni, atvinnuþróunarfélagi Suðurnesja og Þróunarfélagi Keflavíkurflugvallar og kynningunni lýkur n.k. miðvikudag, 26. mars.
Hönnunarklasi Suðurnesja er samstarfsverkefni hönnuða á Suðurnesjum með það að markmiði að efla samvinnu og styðja við nýsköpun.
VF/Olga Björt