Bygg
Bygg

Mannlíf

Glæsileg dagskrá á Menningarviku Grindavíkur
Menningarvikan í Grindavík er nú haldin í fimmta sinn.
Fimmtudagur 7. mars 2013 kl. 11:07

Glæsileg dagskrá á Menningarviku Grindavíkur

Menningarvika í Grindavík er haldin í fimmta sinn 9.-17. mars næstkomandi. Menningarvikan var fyrst haldin árið 2009 og hefur hátíðinni vaxið fiskur um hrygg á undanförnum árum. Tónleikar, listasýningar, vísnakvöld o.fl. er meðal þeirra viðburða sem er á dagskrá á Menningarvikunni í ár. Auk fjölmargra grindvískra tónlistarmanna þá stígur einnig á stokk rokkhljómsveitin Skálmöld í Kvikunni þann 16. mars. Magnús og Jóhann halda einnig tónleika á Bryggjunni þann 17. mars.

„Markmiðið með vikunni er að draga Grindvíkinga, sem eru í listum, sem mest fram í sviðsljósið og leyfa svo okkur hinum í samfélaginu að njóta. Þetta hefur gengið framar vonum og á hverju ári stíga nýir Grindvíkingar á stokk,“ segir Kristinn Reimarsson, sviðsstjóri frístunda- og menningarviðs Grindavíkurbæjar. Hvað er það sem stendur upp úr í Menningarvikunni í ár?

„Á hverju ári er það framlag heimamanna sem stendur upp úr en við höfum á hverju ári reynt að fá til okkar þekkta listamenn. Í ár eru það tónleikar með Magnúsi og Jóhanni á Bryggjunni, sunnudaginn 17. mars og svo með hljómsveitinni Skálmöld í Kvikunni laugardagskvöldið 16. mars.  Þetta eru viðburðir sem enginn má missa af.  Annars höfðar dagskráin til allra aldurshópa og skólastofnanir bæjarins eru mjög virkir þátttakendur í vikunni.“

Hefur mikla þýðingu fyrir samfélagið í Grindavík

Undirbúningur fyrir hátíðina hófst í byrjun janúar og eru fjölmargir listamenn úr Grindavík sem taka þátt. „Það verða tvær myndlistarsýningar með fimm grindvískum áhugamyndlistarmálurum. Nokkur fjöldi tónlistarmanna kemur fram, bæði í grindvískum atriðum eða með öðrum. Svo verður grindvískt vísna- og sagnakvöld í Kvikunni þriðjudaginn 12. mars þar sem fjöldi Grindvíkinga mun stíga á svið þannig að það eru nokkuð margir Grindvíkingar sem munu láta ljós sitt skína í menningarvikunni,“ segir Kristinn. Hann telur Menningarvikuna hafa mikla þýðingu fyrir bæjarfélagið.

„Hún hefur töluverða þýðingu og þá helst í þá veru að hún þjappar fólki saman og blæs jákvæðni í fólk eftir myrka vetrardaga. Samfélagið finnur að það er margt gott í gangi í Grindavík og ekki þarf að sækja alla menningarviðburði til höfuðborgarinnar. Andrúmsloftið meðal íbúa er gott og það eru margir sem bíða spenntir eftir þessari viku. Ég hvet fólk til að kynna sér dagskrána vel og vera virkir þátttakendur. Mjög margir nota tækifærið og bjóða ættingjum og vinum í heimsókn til Grindavíkur þessa daga,“ segir Kristinn

Sú nýjung verður í boði í ár að hægt verður að nálgast fréttir og dagskrá vikunnar í snjallsímum með sérstöku snjallforriti sem verður aðgengilegt á heimasíðu Grindavíkurbæjar frá með deginum í dag. Þar verða einnig fluttar daglegar fréttir frá vikunni.

Dagskrá í Menningarviku Grindavíkur má finna í nýjasta tölublaði Járngerðar.

Bílakjarninn
Bílakjarninn