Glæsileg árshátíð Akurskóla
Árshátíð Akurskóla var haldin í gær með glæsibrag en nemendur buðu upp á leikrit, söng og dans eins og þeim einum er lagið. Til þess að bæta um betur var svo boðið upp á heljarinnar veislu að loknum skemmtiatriðum en nemendur, foreldrar og starfsfólk gæddi sér á veitingum sem foreldrar komu með á hlaðborð.
Hér að neðan má sjá nokkrar myndir frá herlegheitunum.