Bygg
Bygg

Mannlíf

Gjörningahátíð í Vogum í október
Föstudagur 1. október 2010 kl. 08:43

Gjörningahátíð í Vogum í október


Gjörningahátíð hefst í Vogum þann 15. október næstkomandi á vegum menningarverkefnisins Hlöðunnar. Hátíðin hefur fengið heitið „Litla gjörningahátíðin“ og hefst með flutningi verksins Bíltúr jeppi sem þeir Áki Ásgeirsson, Halldór Arnar Úlfarsson og Páll Ivan Pálsson flytja. Þar á undan munu skáld úr hópi Nýhil flytja ljóðagjörninga víðs vegar um bæinn.

Aðalgestur hátíðarinnar verður Essi Kausalainen og mun hún flytja verk sitt í Hlöðunni laugardaginn 16. október kl. kl. 15.
Essi Kausalainen er meðal þekktustu gjörningalistamanna yngri kynslóðarinnar í Finnlandi og hefur tekið þátt í sýningum og hátíðum víða um heim, að sögn Mörtu Guðrúnar Jóhannsdóttur, forsvarsmanns Hlöðunnnar.  Fyrr á árinu hélt Essi Kausalainen einkasýninguna Performance Portraits í hinu virta Muu gallery í Helsinki.

Í Minni-Vogum, litlu vinalegu húsi frá 1922, hefur menningin hreiðrar um sig undir merkjum Hlöðunnar. Húsið  gamalt býli og við það stendur gömul hlaða sem nafn menningarverkefnisins er sprottið af. Í hlöðunni er ákjósanlegt rými fyrir sýningar og aðrar menningaruppákomur. Á neðri hæð íbúðarhússins er gestavinnustofa. Viðburðir á vegum Hlöðunnar hafa hlotið góðar undirtektir eins og t.d. líflegur sveitamarkaður sem þar var haldinn nýlega.

VFmynd/elg – Marta Guðrun Jóhannesdóttir er húsráðandi í Minni-Vogum þar sem hún skipuleggur menningarviðburði undir merkjum Hlöðunnar.

Bílakjarninn
Bílakjarninn