Mannlíf

Gítarinn þarf ávallt að vera til taks
Ólafur með gítarinn á góðri stundu.
Laugardagur 30. júlí 2016 kl. 14:34

Gítarinn þarf ávallt að vera til taks

Sandgerðingurinn Ólafur Þór verður á Vestfjörðum um helgina

Víkurfréttir spurðu nokkra Suðurnesjamenn út í áform þeirra um verslunarmannahelgina en fólk er ýmist á leið á útihátíðir með vinunum, í sumarbústað með fjölskyldunni eða slaka á heima við og njóta kyrrðarinnar.

 Tónlistarmaðurinn Ólafur Þór Ólafsson ætlar að vera á flandri um verslunnarmannahelgina. Ólafur er grunnskólakennari og er einnig forseti bæjarstjórnar í Sandgerði.


Hvað á að gera um verslunarmannahelgina og hvert á að fara?
Ég byrja helgina á því að spila á Opnu sviði á Bryggjunni í Grindavík á föstudagskvöldið. Daginn eftir rúlla ég svo til Vestfjarða með krökkunum mínum og við verðum þar eitthvað vel fram yfir helgi. Stórfjölskyldan á hús við Tálknafjörð og þar ætlum við að hreiðra um okkur og vera svo eitthvað á ferðinni um nágrennið svona eins og við nennum. Okkur finnst æðislegt að komast þarna vestur í fjöllinn, fegurðina og rólegheitin. Sumarið er heldur ekki fullkomnað fyrr en maður er búinn að ná að stinga sér a.m.k. einu sinni í Pollinn.

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024

Er einhver verslunarmannahelgi sem er eftirminnilegri en aðrar hjá þér?
Þær eru nú margar skemmtilegar verslunarmannahelgarnar og sögurnar sem eru til frá þeim eru nú ekki allar prenthæfar í virðulegum fréttamiðli. Ég get nefnt að ég var bara 15 ára þegar ég fór með félögum mínu á fyrstu útihátíðina í Húsafelli árið 1987 og var það eftirminnilegur túr. Sem betur fer hefur menningin í kringum þessa helgi breyst frá þeim tíma og í dag þykir ekki eðlilegt að unglingar séu eftirlitslausir á svoleiðis samkomum. Einhverjar helgar hef ég svo bara verið heima og það hefur líka verið fínt og soldið sérstakt að vera á nánast mannlausum Suðurnesjum.

Hvað finnst þér einkenna góða verslunarmannahelgi og finnst þér eitthvað vera ómissandi um þessa helgi?
Ávísun á góða verslunarmannahelgi er góður félagsskapur og að veðrið haldist svona þokkalegt. Ef þetta tvennt er í lagi þá er ekki stórmál hvar maður er á landinu. Og jú gítarinn þarf að vera með. Það er ekki almennileg verslunarmannahelgi nema það sé gítar einhvers staðar nálægt sem er hægt að grípa í.