Gítar og gott fólk allt sem þarf
Eiður Eyjólfsson er úr Vogunum og er bifreiðastjóri hjá Hópferðum Sævars. Góð verslunarmannahelgi inniheldur gítar og gott fólk að hans mati.
Hvað á að gera um verslunarmannahelgina og hvert á að fara?
Við fjölskyldan förum í sveitina til frænku konunnar, rétt fyrir utan Borgarnes. Mjög rólegt og notalegt.
Hvað finnst þér einkenna góða verslunarmannahelgi og finnst þér eitthvað vera ómissandi um þessa helgi?
Mér finnst að góð verslunarmannahelgi verði að innihalda ferðalag, sem sagt að hanga ekki heima hjá sér. Einnig er mikilvægt að vera með gítar í fanginu og gott fólk í kringum sig. Þar af leiðandi myndi ég segja að gítarinn og góða fólkið væri ómissandi.
Er einhver verslunarmannahelgi sem er eftirminnilegri en aðrar hjá þér?
Nei, get ekki sagt að það sé einhver ein sem standi upp úr. Þær eru allar mjög góðar og svipaðar nú til dags og ég er að fíla það. Ekki skemma góðar hefðir.