Gistinótt í Fjörheimum á morgun

8. og 10. bekkingar í grunnskóla eru líka velkomnir en verðið er 500 kr. Mæting er kl. 20 á föstudagskvöld og verður fram á laugardagsmorguninn. Skráning er í Fjörheimum, en miðafjöldi er takmarkaður.
Nánari upplýsingar um gistinóttina veitir Hafþór Barði Birgisson, forstöðumaður Fjörheima í síma 898 1394
Á meðal annars sem er á döfinni hjá Fjörheimum er gjörningar sem leiklistarhópur Fjörheima stendur fyrir næstu vikuna í tilefni af Evrópuátaki gegn heimilisofbeldi, en Reykjanesbær er opinber þátttakandi í því verkefni.