Giljagaur á leiðinni
Töluvert er farið að hvessa víða um land og við vonum að Giljagaur fari varlega þegar hann kemur í nótt.
Íslensku jólasveinarnir eru jólavættir af tröllakyni. Foreldrar þeirra eru Grýa og Leppalúði og er Jólakötturinn húsdýrið þeirra. Hugmyndir um útlit jólasveinanna hefur verið breytilegt. Í fyrstu voru þeir taldir tröllum líkir, síðar í mannsmynd, en stórir, ljótir og luralegir.
Til að auðvelda íslenskum jólasveinum að muna í hvaða röð og hvaða daga þeir fara á milli húsa og gefa í skó, fengum við til liðs við okkur Huldu og Krumma hjá Raven Design til að nota myndir af jólasveinunum sem þau hafa hannað og selt.
Giljagaur var annar,
með gráa hausinn sinn. -
Hann skreið ofan úr gili
og skauzt í fjósið inn.
Hann faldi sig í básunum
og froðunni stal,
meðan fjósakonan átti
við fjósamanninn tal.
Jóhannes úr Kötlum.