Gettu enn betur í Heiðarskóla

Logi Bergmann Eiðsson, spyrill Gettu betur, var spyrill kvöldsins og fórst honum starf sitt vel úr hendi eins og hans er vísa. Dómari var Margrét Stefánsdóttir en hún ásamt Eysteini Eyjólfssyni sömdu spurningarnar. Tímavörður var Gunnlaugur Kárason og stigavörður Guðrún Sigríður Egilsdóttir, formaður nemendaráðs Heiðarskóla.
Báðar viðureignirnar í undanúrslitum unnust naumlega en Myllubakkaskóli sigraði lið Holtaskóla sem þeir Björgvin Baldursson, Sveinn Þórhallsson og Stefán Guðbert Sigurjónsson skipuðu og Heiðarskóli sigraði lið Njarðvíkurskóla en lið Njarðvíkingaa skipuðu þau Anna Andrésdóttir, Sidi Zaki Ramadahn og Vaka Hafþórsdóttir.
Til úrslita kepptu lið Myllubakkaskóla og Heiðarskóla og hafði lið Heiðarskóla sigur eftir harða keppni. Sigurlið Heiðarskóla skipuðu þau; Elín Inga Ólafsdóttir, Helgi Reynisson og Arnar Steinn Elísson en í liði Myllubakkkaskóla voru Hilmar Pétur Sigurðsson, Arnar Ingi Tryggvason og Erlingur Þorsteinsson.
Sigurliðið hlaut veglegan bikar í verðlaun og bókasafn vinningsskólans hlaut að gjöf Stóru tilvitnanabókina frá Bókabúð Keflavíkur – Pennanum.
Keppnin tókst vel og næsta víst er að hún verður endurtekin að ári. Hver veit nema að í þessari keppni hafi stjörnur spurningarkeppna framtíðarinnar tekið sín fyrstu skref?