Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Mannlíf

Gestir rokksafnsins segja bara VÁ
Tómas Viktor Young.
Sunnudagur 13. júlí 2014 kl. 10:00

Gestir rokksafnsins segja bara VÁ

Þriggja mánaða Hljómahöll fer vel af stað. Rokksafnið er vinsælast hjá hópum.

 

Rétt tæpir þrír mánuðir eru síðan Hljómahöllin var opnuð. Víkurfréttir tóku púlsinn á Tómasi Young, framvæmdastjóra, en nóg hefur verið að gera hjá honum og öðru starfsfólki hallarinnar.
 
Viðtökur fram úr væntingum
„Ég er ánægðastur með útlit safnsins í heild. Þegar fólk kemur hingað býst það við rosalega litlu en þegar það kemur inn segir það bara VÁ!“ segir Tómas og að ástæðan sé sú að fólki finnist safnið miklu stærra og viðameira en það átti von á. Safnið hafi í raun farið fram úr væntingum að mati gesta og það sé ánægjuefni. „Það bera allir safninu söguna vel. Viðtökur, t.d. frá Páli Óskari og öðru tónlistarfólki, hafa verið frábærar og margir gefið muni. Ég fékk símtal nýverið frá einum sem á bar í Reykjavík og var búinn að sanka að sér plakötum og hljóðfærum sem tónlistarmenn höfðu gefið honum. Hann sagði einfaldlega: Þið eruð búnir að opna rokksafn. Ég er búinn að geyma hérna dót fyrir ykkur í nokkur ár,“ segir Tómas og brosir.  
 
 
Flestir gesta í stórum hópum 
Þúsundir gesta hafa séð safnið, þar af langflestir í hópum. „Í síðustu viku byrjaði t.d. einn dagurinn á því að það komu fjórar rútur með 200 eldri borgurum. Safnið er mjög vinsælt og hefur náð fótfestu hjá vorferðum, hópferðum og óvissuferðum hjá fyrirtækjum, skólum og klúbbum,“ segir Tómas. Ótrúlegt sé hversu mikið af fyrirspurnum séu með að koma með hópa. Það hafi í raun komið mest á óvart. „Að vissu leyti er það fínt vegna þess að því fylgir visst áreiti og þá lærum við sem starfsmenn vel á húsið, safnið og hvernig við gerum hlutina. Þetta tekur allt tíma. Við höfum fengið rými til að anda inni á milli og enn verið að klára smáatriði. Það getur tekið allt að ár.“ Þá hefur ásókn verið mikil í sali hússins og Tómas segir að hann og starfsfólkið hafi vart haft undan. „Ég hef fengið fyrirspurnir frá starfsfólki mínu um hvort ég sé að ganga fram af því, sérstaklega í maí. Ég bjóst til dæmis ekki við öllum þessum hópum í maí og margir þeirra vildu fá súpu eða aðrar veitingar í hádeginu og aðrir hópar vildu hafa barinn opinn,“ segir Tómas.
 
 
Vill fleiri erlenda ferðamenn
Tómas segir helstu áskorun sína vera að kynna safnið fyrir útlendingum. „Reykjanesbær er ekki áfangastaður og við viljum koma Rokksafninu á kortið þannig að það verði viðkomustaður áður en fólk fer heim á leið. Það gerum við með því að koma okkur inn í ferðaplön hjá fólki og það gerist ekki hratt.“ Hann segir að starfsmenn Atlantic, sem sjá um skemmtiferðaskip sem koma hingað, hafi komið á opnunina og verið mjög spenntir. „Þeir sögðust pottþétt geta selt aðgang að safninu en þó ekki fyrr en árið 2015. Fólk sem kemur hingað með skemmtiferðaskipi er löngu búið að plana sína ferð. Þannig tekur tíma að komast inn hjá ferðaþjónustuaðilunum. Ég bjóst svo sem ekki við að það yrði hangið á hurðarhúninum en við höfum verið að auglýsa í stórum ferðablöðum og svo erum við að skoða netmarkaðssetningu líka. Við viljum planta fræjunum áður en fólk kemur til Íslands,“ segir Tómas en bætir við að erlendir gestir hafi þó komið í safnið sem ýmist hafi fundið eitthvað um það á netinu eða séð skiltið úti á horni. „Kannski hafa þeir séð bæklingana og jafnvel eru hótelin á svæðinu að minnast á okkur.“
 
VF/Olga Björt
Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024