Gestafjöldi tvöfaldaðist á Safnahelgi á Suðurnesjum
Safnahelgi á Suðurnesjum var haldin í níunda sinn um þar síðustu helgi og þótti takast með eindæmum vel. Fjöldi fólks lagði leið sína um söfn og sýningar í öllum bæjarfélögunum fimm og gestatölur benda til að fjöldinn hafi tvöfaldast frá í fyrra þegar rúmlega fjögur þúsund manns nýttu sér boðið.
Gestir sem heimsóttu söfnin í Reykjanesbæ voru til dæmis 4086 talsins og þá eru ótaldir gestir í Garði, Grindavík, Sandgerði og Vogum. Veðrið var með besta móti þannig að gestir nutu ekki einungis sögu, menningar og lista heldur fengu í kaupbæti náttúrufegurð svæðisins.
Íbúar sjálfir nýttu sér tilboðin sem í gangi voru en einnig var áberandi hve margir gestir komu af höfuðborgarsvæðinu. Fjöldi sjálfboðaliða tók þátt í verkefninu ásamt starfsmönnum sveitarfélaganna sem vinna við menningar- og safnamál.
Safnahelgin er sameiginlegt verkefni sveitarfélaganna fimm á Suðurnesjum og er liður í menningarferðaþjónustu svæðisins. „Markhópurinn hefur til þessa fyrst og fremst verið heimafólk og íbúar höfuðborgarsvæðisins en spurning er hvort kominn sé tími til að útvíkka þetta með tilliti til þeirra vinsælda sem verkefnið nýtur,“ segir Valgerður Guðmundsdóttir, menningarfulltrúi í Reykjanesbæ.
Framkvæmdastjórn safnahelgarinnar sendir bestu kveðjur til allra sem komu að verkefninu, hvort heldur sem gestir eða starfsmenn, og hlakkar til að vinna með þeim aftur að ári, segir í tilkynningu frá stjórninni.