Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Mannlíf

Gengið um verslunarmannahelgina
Miðvikudagur 13. júlí 2011 kl. 09:37

Gengið um verslunarmannahelgina

Af stað á Reykjanesið, gönguhátíð í Grindavíkurlandi verður um verslunarmannahelgina 29. júlí til 1. ágúst. Boðið verður upp á fjórar gönguferðir með leiðsögn frá föstudegi til mánudags:

Föstudagur 29. júlí:
Skógarganga. Mæting kl. 20:00 við Selskóg fyrir neðan fjallið Þorbjörn, (Fjallað verður um skógrækt í Selskógi o.fl. fróðlegt, 1-2 tímar, stutt ganga. Ekkert þátttökugjald.

Laugardagur 30. júlí: Strandgönguferð (Krýsuvíkurberg). Mæting við tóftir Krýsuvíkurkirkju á Krýsuvíkurleið kl. 11:00. Ekið á einkabílum að Selöldu og gengið þaðan ofan Krýsuvíkurbergs, 3-5 tímar.

Sunnudagur 31. júlí: Seljaferð (Hraunsel). Mæting kl. 11:00 við Ísólfsskála sem er við Suðurstrandarveg 10 km austur af Grindavík. Ekið þaðan á einkabílum að Méltunnuklifi og gengið í Hraunsel, 3-5 tímar.

Mánudagur 1. ágúst: Hellaferð (Bálkahellir og Arngrímshellir). Mæting kl. 11:00 við Litlu Eldborg á Krýsuvíkurleið í átt að Selvogi, 3-5 tímar. Þátttakendur mæti með ljós og höfuðfat.

Mælt er með að vera í góðum gönguskóm og taka með sér nesti. Gengið verður um stórbrotið umhverfi í nánd við höfuðborgarsvæðið.
Allir eru á eigin ábyrgð í ferðum.

Þátttökugjald í hverja ferð kr. 1.000, frítt fyrir börn. Leiðsögumaður, Sigrún Jónsd. Franklín, gsm 6918828. Nánar um ferðir á www.sjfmenningarmidlun.is og www.grindavik.is

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024