Gengið um Reykjanesskagann
Í Reykjanesbæ er starfræktur gönguhópur sem er starfræktur sem áhugahópur um náttúru og sögu Reykjanesskagans og holla hreyfingu. Öllum er velkomið að vera með en hópurinn hittist við Ytri-Njarðvíkurkirkju kl. 19:00 á miðvikudögum.
Gönguferðir hópsins eru misjafnlega langar og erfiðar en oftast er reynt að vera komin heim um kl. 23:00 þannig að gangan tekur um 3 klst. Í gönguhópnum er fólk á öllum aldri og er reynt að miða við að þetta sé við allra hæfi. Hópurinn varð til þegar nokkrir áhugamenn ákváðu að ganga ströndina frá Vatnsleysu til Hafna á einu sumri. Þeim áfanga var náð síðasta sumar en á meðan á því stóð stækkaði hópurinn ört og dagskrá fyrir þetta sumar var sett saman.
„Við höfum verið misjafnlega mörg í göngunum allt frá því að vera 8-25 manns oftast erum við 15-20. VIð förum ýmist með rútu eða á eigin bílum það er vel merkt í dagskránni“ segir Rannveig Lilja Garðarsdóttir (Nanný), ein af aðalsprautunum í hópnum. Það eru ótal fallegir staðir hér á Reykjanesinu sem vert er að skoða, Markaðs og atvinnumálaskrifstofa Reykjanesbæjar hefur gefið út göngukort sem stuðst var við þegar dagskrá sumarsins var útbúin. Nokkrar af þessum leiðum er búið að stika, og segir Nanný það vera verðugt verkefni að stika fleiri leiðir. „Það mætti t.d stofna hér félag áhugafólks um Reykjanesskagann sem myndi taka það að sér,ásamt því að kynna fyrir landsmönnum hvílíka náttúru skaginn hefur að geyma“, stingur hún upp á. Greinilegt er að áhugi á svona ferðum er til staðar en Ferðafélag Íslands og Útivist hafa staðið fyrir ferðum um skagann á undanförnum árum og hefur verið mikil þáttaka í þeim. „Við höfum ekki verið með leiðsögumann, en við höfum reynt að fá með okkur fólk sem þekkir til, og svo höfum við lesið okkur til og reynt að miðla því sem við vitum. Fólk kemur alfarið á eigin vegum og hvetjum við fólk að slást í för með okkur, það er ekki farið hratt yfir svo fólk þarf ekki að vera í toppformi til að ganga með okkur. Aðalatriðið er að hafa gaman af þessu“, segir Nanný og bætir við að gaman væri ef fólk kæmi með einhvern fróðleik til að miðla okkur.
Dagskrá gönguhópsins:
18.Júlí Staðarborg *
Byrjað á að skoða Kálfatjarnarkirkju gengið þaðan í Staðarborg sem er gömul fjárborg gengið til baka. Farið verður á eigin bílum. Lagt af stað frá Njarðvíkurkirkju kl. 19.00.
25.Júlí Höskuldarvellir Djúpavatn. **
Gengið frá Höskuldarvöllum með rótum Trölladyngju um Sogið framhjá Spákonuvatni yfir Núpshlíðarháls að Djúpavatni. Síðan til baka að Höskuldarvöllum. Farið verður á eigin bílum. Lagt af stað frá Njarðvíkurkirkju kl. 19.00.
1.Ágúst. Kúagerði Straumsvík. **
Lokagangan á þessu sumri. Gengið verður frá Kúagerði að Straumsvík það er upplagt að enda sumarið með þessari skemmtilegu strandgöngu. Farið verður með rútu og lagt af stað frá Njarðvíkurkirkju kl. 19.00.
* **
Stutt auðveld ganga. Frekar létt ganga en gæti
verið svolítið á fótinn.
*** ****
Frekar löng ganga ekki mikið Frekar erfið ganga
mikið á
á fótinn. fótinn.