Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Mannlíf

Gengið frá Háleyjabungu að Reykjanesvita
Miðvikudagur 8. júní 2016 kl. 09:04

Gengið frá Háleyjabungu að Reykjanesvita

Í tilefni af Geopark verður boðið uppá gönguferð miðvikudaginn 8.júní. Gengið verður frá Gunnuhver að Háleyjabungu sem er 25m djúp og fallega mynduð dyngja þarmá finna langt að komið berg með afar sérstökum kristöllum. Þaðan er gengið með ströndinni út að Skarfavita og þaðan að Reykjanesvita þar sem stendur til að byggja upp aðstöðu fyrir ferðamenn.  
 
Gangan tekur u.þ.b. 3-4 klst.
Leiðsögumaður: Rannveig L. Garðarsdóttir        
Kostnaður: kr 1000 frítt fyrir 12 ára og yngri
Allir velkomnir
Upphafsstaður: Vesturbraut 12, Reykjanesbær  
Hvenær:  kl 19:00

Heilræði:

* Göngustafi.
* Drykkjarföng.
* Léttan bakpoka.
* Viðeigandi hlífðarfatnað eftir veðri (t.d. aukapeysu, sokka, vettlinga, húfu).
* Létt nesti (t.d. samloku, ávexti, kex).
* Góðir gönguskór.
* Góða skapið.


Öryggisupplýsingar:

Fararstjóri í er Rannveig Lilja Garðarsdóttir
Símanúmer fararstjóra er 8938900

Félagar úr Björgunarsveitinni Suðurnes eru með í öllum gönguferðum sumarsins og taka þátt í að hafa yfirsýn yfir hópinn, sjá um skyndihjálparviðbrögð skyndihjálparviðbrögð, er ráðgefandi varðandi frávik í göngunni. Ef neyðartilvik verður sér björgunarsveitarfólk alfarið um að stýra aðgerðum.

Nota 112 appið ef göngufólk er með það í símanum. Kveikja á því í upphafi göngu. Það gefur upp staðsetningu og auðveldar að ná í 112 ef þess gerist þörf.

Göngufólk meti eigið líkamlegt atgervi og komi ekki nema það treysti sér til.

Göngufólk er á eigin ábyrgð í gönguferðunum.

Leiðsögn fer fram á íslensku.

Aldrei skal yfirgefa hópinn. Við förum saman af stað og komum saman til baka.

Ef af einhverjum ástæðum einhver þarf að fara skal láta fararstjóra vita, ástand er metið og viðkomandi fær fylgd til baka eða allur hópurinn snýr við.

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024