Gengið á Keili í kvöld
Gengið verður á Keili í kvöld miðvikudag 27. júlí
Keilir er oft talið vera einkennisfjall Suðurnesja, fjallið er 378 m hár gígtappi sem trónir yfir umhverfi sínu.
Gengið verður frá Höskuldarvöllum yfir mismunandi gróft hraun að Keili og þaðan upp fjallið, fyrst í lausamöl eftir þægilegu einstigi langleiðina upp en síðustu metrana er harðara undir fæti. Verðlaunin eru svo dásamlegt útsýni yfir Reykjanesskagann.
Mæting við SBK Grófin 2-4 Reykjanesbæ kl 19:00 kostnaður kr 1000 í rútuna.
Leiðsögumaður verður Rannveig L. Garðarsdóttir