Krambúðinn 4-7 sept
Krambúðinn 4-7 sept

Mannlíf

Geirfuglinn afhjúpaður í slagviðrinu
Föstudagur 3. september 2010 kl. 15:10

Geirfuglinn afhjúpaður í slagviðrinu


Geirfuglinn, skúlptúr eftir Todd McGrain, var afhjúpaður í dag við Valahnúk á Reykjanesi. Þar stendur fuglinn nú og horfir í átt til Eldeyjar, þar sem síðustu heimkynni hans voru.

Samstarf listamannsins og Reykjanesbæjar er liður í í alþjóðlegu verkefni sem ber heitið „The Lost Bird Project". Listamaðurinn Todd McGrain hefur í nokkur ár unnið að gerð skúlptúra af útdauðum fuglum m.a. geirfuglinum og vill þannig vekja athygli samtímans á umhverfisvernd og ást á náttúrunni. Hann vinnur fuglana í brons og er hverjum fugli ætlaður staður víðs vegar um heiminn, allt eftir því hvar þeirra upprunalegu heimkynni voru. Í tilefni þess að talið er að síðasti geirfuglinn hafi verið drepinn í Eldey 3. júní í844 hefur verið ákveðið að styttan af geirfuglinum verði sett upp neðan við Valahnjúk á Reykjanesi og mun fuglinn horfa út til Eldeyjar og minna okkur um leið á sameiginlega ábyrgð allra þjóða á náttúru og umhverfisvernd.


Optical Studio 15, 18, 20, 22, 25, 27, 29. ágúst 1-6 sept karl
Optical Studio 15, 18, 20, 22, 25, 27, 29. ágúst 1-6 sept karl
Reykjanes Optikk ljósan25
Reykjanes Optikk ljósan25