Gegnumbrot-Ljósmyndasýning í Saltfisksetrinu
Sólný Pálsdóttir opnar ljósmyndasýningu í Listasal Saltfisksetursins
Hafnargötu 12a Grindavík laugardaginn 4. okt. Kl. 14:00
Sólný er fædd og uppalin í Grindavík. Hún er kennaramenntuð en ákvað að láta gamlan draum rætast og læra ljósmyndun. Hún er nemandi í Ljósmyndaskóla Sissu og Leifs og útskrifast þaðan um áramót.
Sýningin ber heitið Gegnumbrot og vísar nafnið m.a. til myndanna sem eru teknar á Holgu, filmuvél sem býður upp á ýmsa möguleika í ljósmyndun. Þetta eru persónulegar myndir sem allar eru teknar á uppáhaldstöðum ljósmyndarans í Grindavík.
Á sýningunni verður einnig lokaverkefni Sólnýjar frá fyrsta ári hennar í Ljósmyndaskólanum. Sýningin stendur til 20. okt.
Saltfisksetrið er opið alla daga frá 11:00 – 18:00.