Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Mannlíf

Gefandi samstarf leikskóla og grunnskóla í Grindavík
Miðvikudagur 20. nóvember 2013 kl. 13:35

Gefandi samstarf leikskóla og grunnskóla í Grindavík

Í tilefni af Degi íslenskrar tungu komu nemendur 7. bekkjar grunnskólans í leikskólann Krók að lesa upphátt fyrir börnin. Þau voru með ljóð eftir Þórarin Eldjárn í farteskinu og fóru út um allan leikskólann og á útisvæði til að lesa upphátt fyrir stóra og smáa hópa. Mikil gleði og áhugi einkenndi hópinn sem lét sér ekki nægja að lesa einu sinni heldur margoft því þau vildu öll lesa fyrir sem flesta. Þær í eldhúsinu fengu líka sinn skerf og höfðu gaman af. Að launum fengu nemendurnir svo piparkökur sem börnin höfðu bakað.  

Þetta verkefni var liður í undirbúningi að upplestrarkeppni 7. bekkjar og upphaf að gefandi samstarfi á milli skólanna. Að sögn starfsmanna leikskólans gaf það þeim mikið í svartasta skammdeginu að fá kurteis, skemmtileg og áhugasama grunnskólanemendur sem fönguðu athygli barnanna og dreifðu gleði um leikskólann. Einnig eru fregnir af því að nemendurnir hafi komið glaðir og ánægðir aftur í grunnskólann eftir veruna í leikskólanum.

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024