Geðveikir bolir seldir á tónleikum Rúnna Júll annað kvöld

Geðveik hönnun er verkefni félaga í Björginni sem er athvarf fyrir fólk með geðraskanir. Markmið verkefnisins er að vinna gegn fordómum, stuðla að endurhæfingu og nýta mannauð.
Starfsendurhæfing er mikilvæg í veikindum og hjálpar fólki að vera hluti af samfélaginu en geðveik hönnun hefur vakið mikla athygli.
Bolirnir verða seldir á kr. 1.500 og eru tónleikagestir hvattir til þess að nýta sér tækifærið.
Styrktaraðilar verkefnisins eru Reykjanesbær, Sparisjóðurinn í Keflavík, Bónus og Henson.