Laugardagur 12. apríl 2003 kl. 23:02
Gaui Skúla þakkaði eiginkonunni stuðninginn

Nú stendur yfir uppskeruhátíð meistaraflokka Keflavíkur í körfuknattleik í Stapanum. Fjölmargar viðurkenningar hafa verið veittar og körfuknattleiksdeildin hefur tekið við fjölmörgum viðurkenningum og fjárframlögum frá stuðningsaðilum. Þannig fékk deildin 600 þúsund krónur frá Reykjanesbæ, 400 þúsund krónur frá Landsbankanum og 300 þúsund krónur frá Samkaup og Kaskó.Þá kom Guðjón Skúlason, leikmaður í pontu og svaraði spurningunni sem hann hefur verðir spurður svo oft að á síðustu dögum. Guðjón svaraði því að hann væri hættur að leika körfubolta í dag - hvað svo sem hann gerði á morgun.
Þá kallaði hann eiginkonu sína, Ólöfu Einarsdóttur, upp á svið og færði henni blómvönd fyrir ómældan stuðning við sig í gegnum árin. Það væri ekki fyrir alla að búa með körfuknattleiksmönnum sem væru alltaf annað hvort á æfingum eða í keppni. Fyrir þetta vildi hann þakka og fékk mikið lófaklapp úr salnum.
Nánar um verðlaunaafhendingar hér á vf.is á morgun, sunnudag.
Myndin: Ólöf fékk stóran koss frá bónda sínum, Guðjóni Skúlasyni. VF-mynd: Hilmar Bragi Bárðarson