Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Mannlíf

Gargandi snilld: Námskeið í leik, söng og tjáningu
Miðvikudagur 28. janúar 2009 kl. 09:19

Gargandi snilld: Námskeið í leik, söng og tjáningu




Nú eru að hefjast að nýju, námskeið hjá Gargandi snilld en þar er áhersla lögð á leiklist, söng og tjáningu með það að markmiði að efla sjálfstraust, almenna framkomu og sköpunargleði. Kennslan byggist aðallega á leiklistaræfingum, léttum leikjum og hópefli en einnig verður lögð mikil áhersla á undirstöðuatriði í söng, raddbeytingu, framkomu á sviði, notkun hljóðnema og fl.


 Kennt verður á miðvikudögum, klukkutíma í senn, samtals í 8 vikur og er takmarkaður fjöldi á hvert námskeið 8-10 nemendur. Einn tími fer í að syngja lag inn á geisladisk í alvöru hljóðveri og fá þátttakendur að sjálfsögðu disk með sínu lagi til eignar. Í lok námskeiðsins verður svo uppákoma þar sem nemendur koma fram og sýna afrakstur námskeiðsins fyrir nánustu aðstandendur. Miðað er við aldurinn 8-12 ára.


Námskeiðið er unnið í samstarfi við Leikfélag Keflavíkur og fer kennsla fram í Frumleikhúsinu, Vesturbraut 17, þar sem aðstæður eru mjög góðar og allt til staðar.


Verkefnið er styrkt af Menningarsjóði Suðurnesja.


Upplýsingar um skráningu er að finna í auglýsingu annarstaðar í blaðinu og allar nánari upplýsingar eru á www.gargandisnilld.is

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024