Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Mannlíf

Garðyrkjufélag Íslands skoðar garða í Reykjanesbæ
Þriðjudagur 5. júlí 2005 kl. 09:54

Garðyrkjufélag Íslands skoðar garða í Reykjanesbæ

Garðaskoðun, Garðyrkjufélag Íslands, fer fram í Reykjanesbæ þann 10. júlí  klukkan 13:00 - 17:00. Á heimasíðu Garðyrkjufélag Íslands er Reykjanesi ekki líst sem líklegum sælureiti þegar kemur að garðyrkju. Á heimasíðunni kemur fram að þegar flogið er yfir Reykjanesið sé garðgróður og gróðursæld ekki það fyrsta sem kemur í huga. Við nánari athugun þegar komið er inn í bæinn blasa við garðar með fjölbreyttum gróðri þar sem mismunandi litir og angan gefi lífinu sannarlega gildi.

Garðyrkjufélagið bendir einnig á að á síðustu árum hafi margir kappkostað við að rækta garðinn sinn. Sjá megi Tréveggi, palla, álfa, ljósapolla, grjót og annað sem setji sterkan svip á garðana.  Á bak við þessa gróður vin sem Reykjanesbær bíður upp á liggur ótrúleg vinna enda er Reykjanesið ekki auðveldasti staður til að rækta fjölbreyttan gróður.

Í ár verða átta garðar opnir félagsmönnum og öðrum gestum til skoðunar. Garðarnir eru bæði gamalgrónir með ýmsum skemmtilegum plöntum og  nýlegir garðar með áhugaverðum lausnum í hönnun og notkun plantna.

Sá háttur er hafður á í Garðaskoðuninni að fólk kemur á sínum bílum og byrjar að skoða þann garð sem þeim hentar. Gestabók liggur frammi í hverjum garði.

Kort af Reykjanesbæ, þar sem opnu garðarnir eru merktir inná, liggur frammi í öllum görðunum.

Eftirfarandi garðar eru opnir til skoðunar:

Hraunsvegur 6,  Ytri – Njarðvík
Eigendur: Guðfinna Arngrímsdóttir og Sigurjón Þórðarson.

Hraunsvegur 8, Ytri – Njarðvík
Eigendur: Linda Helgadóttir og Gunnar Ágúst Halldórsson

Njarðvíkurbraut 3,  Innri – Njarðvík
Eigandi:  Svanhvít Guðmundsdóttir

Kirkjubraut 2,  Innri – Njarðvík
Eigendur: Guðríður Helgadóttir og  Sigurður G. Sigurðsson

Freyjuvellir 3,  Keflavík
Eigendur: Guðveig Sigurðardóttir og Guðmundur Guðbjörnsson

Grænigarður 12, Keflavík
Eigandi: Sigrún Hauksdóttir

Klapparstígur 4,  Keflavík
Eigendur: Guðbjörg Marteinsdóttir og Hermann Jakobsson,  Marteinn B. Sigurðsson og Guðfinna Jónsdóttir.

Smáratún 40, Keflavík
Eigendur: Áslaug Hilmarsdóttir og Trausti Björnsson
Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024