Garður – mannlíf, minjar og menning
Menningar- og sögutengd ganga og fræðsla verður um Garð á laugardaginn, í boði Sveitarfélagsins Garðs, en gangan er liður í Sólseturshátíðinni. Ferðin mun taka um 1-2 klst.
Gangan hefst við Útskálakirkju kl. 11:00, laugardaginn 30. júní. Gengið verður um kirkjugarðinn og fjallað um sr. Sigurð B. Sívertsen sem var prestur á Útskálum í hálfa öld. Í ár eru 120 ár liðin frá láti hans. Gengið verður að Skagagarðinum sem talinn er vera allt að 1000 ára og er enn greinanlegur. Gengið að Draughól og letursteinn skoðaður. Þar gæti verið kominn steinn yfir leiði Kristjáns skrifara og manna hans; sem voru myrtir af norðanmönnum er hefndu fyrir aftöku Jóns Arasonar biskups 1551 og voru grafnir við Kirkjuból. Í lokin verður gengið eftir hvítri sandsströndinni að Garðskagavita og Byggðasafninu á Garðskaga.
Gangan er greiðfær en að hluta í grasi. Sigrún Jónsd. Franklín, leiðsögumaður Reykjaness sér um fræðsluna. Hún mun jafnframt kynna nýútkomið rit sitt Sagnaslóðir á Reykjanesi í Byggðasafninu eftir gönguna.
mynd: Steinninn við Kirkjuból eða Draughól