Sunnudagur 2. mars 2008 kl. 19:58
Garðskagi vinsæll til útivistar

Fjölmargir leggja leið sína á Garðskagavita allar helgar til að njóta útivistar. Þessa helgi var engin breyting þar á. Fólk nýtur þess að ganga eftir sandfjörunni eða uppi á bakkanum í snjónum. Þá er gott að fá sér heitan kaffibolla og tertusneið hjá Möttu og Magga í Veitingahúsinu Flösinni.
Ljósmynd: Hilmar Bragi