Ganga suður Sýrfell að Háleyjarbungu í dag
Reykjanesgönguferðir munu í dag, miðvikudaginn 6. júlí, bjóða upp á gönguferð með Guðmundi Ómari Friðleifssyni, yfirjarðfræðingi HS Orku. Gengið verður suður Sýrfell að Háleyjarbungu þar sem sagt verður frá mismunandi gígum, sprungum og misgengjum. Endað verður við Gunnuhver. Gönguferðin mun taka um þrjár klukkustundir og er erfiðleikastigið þrjár stjörnur og því við allra hæfi sem treysta sér til göngu.
Gangan er um átta til níu kílómetrar og eru allir velkomnir. Fararstjóri verður Rannveig L. Garðarsdóttir. Þátttökugjald er 1.000 krónur en frítt fyrir 12 ára og yngri. Gangan hefst við Vesturbraut 12 í Reykjanesbæ klukkan 19:00.
Eftirfarandi er gott að hafa með:
- Göngustafi
- Drykkjarföng
- Léttan bakpoka
- Viðeigandi hlífðarfatnað eftir veðri (til dæmis aukapeysu, sokka, vettlinga, húfu)
- Létt nesti (til dæmis samloku, ávexti, kex)
- Góða gönguskó
- Góða skapið
Símanúmer Rannveigar fararstjóra er 893 8900
Félagar úr Björgunarsveitinni Suðurnes eru með í öllum gönguferðum Reykjanesgönguferða í sumar og taka þátt í að hafa yfirsýn yfir hópinn, sjá um skyndihjálparviðbrögð og eru ráðgefandi varðandi frávik í göngunni.
Ef neyðartilvik verður sér björgunarsveitarfólk alfarið um að stýra aðgerðum.
Göngufólk er hvatt til að nota 112 appið ef það er með það í símanum og kveikja á því í upphafi göngu. Það gefur upp staðsetningu og auðveldar að ná í 112 ef þess gerist þörf. Göngufólk skal meta eigið líkamlegt atgervi og ekki koma með nema það treysti sér til.
Göngufólk er á eigin ábyrgð í gönguferðunum. Leiðsögn fer fram á íslensku.
Aldrei skal yfirgefa hópinn. Hópurinn fer saman af stað og kemur saman til baka. Ef af einhverjum ástæðum einhver þarf að fara skal láta fararstjóra vita, ástand er metið og viðkomandi fær fylgd til baka eða allur hópurinn snýr við.