Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Mannlíf

Ganga landshorna á milli í annað skipti
Mánudagur 11. júní 2012 kl. 10:54

Ganga landshorna á milli í annað skipti



Sex vaskar konur undirbúa nú göngu þvert yfir landið í annað sinn. Lagt verður af stað frá Hornvík á Vestfjörðum á miðvikudag og endað í Hornsvík á suðausturhorni landsins um miðjan júlí. Áætlað er að gengnir verði um það bil 650 kílómetrar. Þeirra á meðal er Suðurnesjakonan Kristín Jóna Hilmarsdóttir. Kristín spjallaði við Fréttablaðið í dag.

„Við erum sex konur á besta aldri í gönguhóp og búnar að ganga saman í átta ár,“ segir Kristín Jóna Hilmarsdóttir göngugarpur. „Fyrir fjórum árum fórum við fjórar úr hópnum til Afríku og gengum á Kilimanjaro. Okkur fannst það svo mögnuð upplifun að við ákváðum að fara í stóra göngu annað hvert ár.“ Fyrir tveimur árum gengu þær alla leið frá Reykjanestá að Fonti á Langanesi. Þær munu því mynda kross yfir landið að göngunni lokinni.

Kristín Jóna segir ferðina vel undirbúna. „Þegar við fórum að skipuleggja næstu göngu komumst við að því að þessi leið sem við förum nú hefur aldrei verið farin, að okkur vitandi. Við höfum alla gönguleiðina merkta í GPS-tæki og vitum nákvæmlega hvar við gistum og hvað við göngum á hverjum degi.“

Þær hafa fengið góða styrki til ferðarinnar. 66° norður styrkir þær um fatakaup og bílaleigan Geysir útvegaði þeim stórt tjald sem þær geta allar gist í. Allar eru þær í góðu líkamlegu formi og hafa gengið nánast allt sem hægt er að ganga. „Við erum með tjald sem við gistum í yfirleitt en það eru skálar á leiðinni sem við fáum að gista í. Það taka okkur allir þvílíkt vel og við erum alls staðar velkomnar.“

Andlega hliðin er stór þáttur, segir Kristín Jóna. „Maður er með sömu manneskjurnar með sér öllum stundum. En við tökum þetta á léttleikanum og erum bara nógu kærulausar. Við eigum allar tvö til þrjú börn og sumar barnabörn og að ferðin hefði aldrei orðið að möguleika stæðu eiginmenn þeirra ekki við bakið á þeim. Þeir koma náttúrulega og hitta okkur og hafa allir verkefni. Þeir þurfa að koma upp á hálendi með vistir og grillkjöt, vonandi. Maður verður að hafa fullt af gulrótum í svona ferð.“

Spurð hvort búið sé að skipuleggja næstu ferð segir hún svo ekki vera. „Nei, næsta ferð verður örugglega ákveðin í þessari ferð,“ segir Kristín Jóna að lokum.

Viðtal Vísir.is

Mynd: Krístin í einni af gönguferðum sínum.


Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024