Miðvikudagur 27. mars 2013 kl. 10:16
Ganga í hús í Vogum og selja páskaliljur og túlípana
Hin árlega blómasala Lionsklúbbsins Keilis í Vogum verður í dag, miðvikudaginn 27. mars. Gengið verður í hús í Vogum og boðnar verða til kaups páskaliljur og túlípanar.
Eins og undanfarin ár rennur ágóði til líknarmála og vonast lionsfélagar eftir því að bæjarbúar taki vel á móti sölufólki.