Gamlar myndir úr Sveitarfélaginu Vogum aðgengilegar á vefnum
Undanfarna mánuði hefur Sesselja Guðmundsdóttir í Vogum staðið að söfnun gamalla ljósmynda úr Sveitarfélaginu Vogum í því skyni að skrá þær og tryggja varðveislu þeirra. Jafnframt hefur verið unnið að því að gera myndirnar aðgengilegar á vefnum og er nú hægt að nálgast myndasafnið í gegnum heimasíðu sveitarfélagsins, www.vogar.is.
Menningarráð Suðurnesja styrkti verkefnið með fjárframlagi og Sveitarfélagið Vogar hefur verið Sesselju innan handar varðandi vinnuaðstöðu og fleira.
Fimmtudagskvöldið 5. nóvember verður myndakvöld í Álfagerði þar sem Sesselja mun kynna afrakstur verkefnis síns og afhenda myndasafnið formlega til varðveislu Minjafélags Vatnsleysustrandar. Þá gefst öllum áhugasömum tækifæri til að rifja upp gamla tíma í sveitarfélaginu í góðum félagsskap yfir rjúkandi kaffibolla.