Gaman að fara í strandblak
Sólveig Hjörleifsdóttir er sautján ára nemi við Verzlunarskóla Íslands. Sólveig er mikil ævintýramanneskja og ætlar hún að verja sumrinu í að vinna í Ævintýrasmiðjunni í Reykjanesbæ, Ævintýralandi í Kringlunni og svo einnig í sumarbúðum í Vindáshlíð. Innan- sem utanlandsferðir verða hennar ferðir í sumar og ætlar hún að verja tímanum sínum sem allra best.
Aldur og búseta? Ég er sautján ára og bý í Keflavík.
Starf eða nemi? Ég er nemandi í Verzlunarskóla Íslands og með skólanum hef ég verið að vinna í Ævintýralandi í Kringlunni sem ég mun halda áfram að gera í sumar.
Hvernig hefur sumarið verið hjá þér? Hef aðallega verið bara að vinna en annars búið að vera mjög gaman.
Hvar verður þú að vinna í sumar? Ég er að vinna á þremur stöðum í sumar; Ævintýrasmiðjunni hérna í Reykjanesbæ, Ævintýralandi í Kringlunni og svo hef ég líka verið að vinna í sumarbúðunum Vindáshlíð.
Hvernig á að verja sumarfríinu? Ég verð dugleg að vinna í sumar og mun reyna nýta frítímann minn í að gera eitthvað skemmtilegt.
Ætlar þú að ferðast í sumar, og hvert þá? Ég fór til Danmerkur fyrr í sumar í brúðkaup og var það eina utanlandsferðin á dagskránni, annars langar mig að reyna komast i gott frí út á land.
Eftirlætisstaður á Íslandi? Austurlandið er í miklu uppáhaldi hjá mér, þá sérstaklega Egilsstaðir og Seyðisfjörður.
Hvað einkennir íslenskt sumar? Mér finnst útilegur vera mjög íslenskt.
Áhugamál þín? Mér finnst sérstaklega gaman að ferðast, baða mig í sundlaugum, prófa nýja veitingastaði, kaupa mér föt á afslætti og pirra systur mína.
Einhvað sem þú stundar aðeins á sumrin? Mér finnst mjög gaman að fara í strandblak og sérstaklega í góðu veðri.
Hvað ætlar þú að gera um verslunarmannahelgina? Mig langar mjög mikið á Þjóðhátið en ég verð líklegast að vinna á Sæludögum í Vatnaskógi.
Hvað fær þig til þess komast í sumarfíling? Örugglega bara að fara í sund í góðu veðri og fá mér ís eftirá.
Hver er sumarsmellurinn í ár að þínu mati? Ég myndi örugglega segja Feels Like Summer með Childish Gambino.
Hvað er það besta við íslenskt sumar? Klárlega útihátíðirnar.
En versta? Flugurnar.
Uppáhaldsgrillmatur? Úff, mjög erfitt val en ég myndi örugglega bara segja hamborgarar.
Sumardrykkurinn í ár? Mér finnst Nocco Juicy Breeze mjög góður.