Gálan plata vikunnar á Rás 2
Plata vikunnar á Rás 2 er þriðja breiðskífa Gálunnar en platan heitir einfaldlega Gálan og kom út síðla árs 2012.
Gálan er tónlistarmaðurinn Júlíus Guðmundsson sem kemur frá Keflavík og er sonur Rúnars Júlíussonar. Júlíus hefur meðal annars verið trommari hljómsveitarinnar Deep Jimi and the Zep Creams og einnig starfað með Bergrisunum, Pandóru og Fálkum. Hann hóf sólóferil undir listamannsnafninu Gálan seint á tíunda áratugnum og sendi frá sér sína fyrstu plötu, Fyrsta persóna eintölu, árið 1998. Önnur platan kom út árið 2001 og var titill hennar kennitala Júlíusar, 220971 – 3099.
Þriðja plata Gálunnar heitir Gálan og kom út þann 5. desember síðastliðinn en þá voru fjögur ár liðin frá því að faðir Júlíusar lést. Textarnir eru flestir eftir Rúnar heitinn en platan er tileinkuð Maríu Baldursdóttur, konu Rúnars og móður Júlíusar. Lagasmíðar, söngur og hljóðfæraleikur eru alfarið í höndum Gálunnar, líkt og á fyrri sólóplötum hans.
Lagalisti:
1. Glöggt er gests augað
2. Allt of oft
3. Hver mun gæta þín
4. Ég reyni
5. Sjö undur veraldar
6. Nóg
7. Gefðu mér von
8. Ég mun þarfnast þín
9. Erum við ánægð