Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Mannlíf

Gáfu sleða - og þá fór að snjóa!
Föstudagur 28. desember 2012 kl. 12:19

Gáfu sleða - og þá fór að snjóa!

Hjónin Erla Þorsteinsdóttir og James N. Robertson komu færandi hendi og gáfu skammtímavistuninni Heiðarholti í Garði með sérsmíðaðan snjósleða, sem nýtist fötluðum börnum sérstaklega vel.

James smíðar og selur ýmislegt úr við og er búsettur í Garðinum. Hann átti þennan sleða og varð hugsað til skjólstæðinga Heiðarholts þegar hann sá að ekki var eftirspurn eftir honum eins og er en sagðist jafnframt geta búið til nýjan ef einhver óskaði eftir.

Það var eins og við manninn mælt að þegar sleðinn var kominn í Heiðarholtið byrjaði að snjóa og allt var orðið hvítt á innan við hálftíma eftir að gjöfin var komin í hús.

Við í Heiðarholti erum snortin og afar þakklát fyrir rausnarlega gjöf, segir í tilkynningu frá Heiðarholti. James heldur úti facebooksíðunni: Ýmis smíði úr tré
 

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024