Gaf sjaldgæfa mynt í safnið í Myllubakkaskóla
Nýverið kom Emil Birnir Sigurbjörnsson í Myllubakkaskóla í Keflavík og færði skólanum silfurpening með mynd af Kristjáni X sem hann fékk í skírnargjöf frá ömmu sinni, Bjarnveigu Sigríði Magnúsdóttur árið 1933. Peningurinn verður geymdur í myntsafni skólans sem er minningarsafn Guðlaugar og Eyjólfs á Stuðlabergi. Myntsafnið gaf Guðjón Eyjólfsson síðla síðasta árs en hann er einnig kenndur við húsið Stuðlaberg í Keflavík.
Á myndinni eru þau saman Guðjón Eyjólfsson, Emil Birnir og Bryndís Guðmundsdóttir, skólastjóri Myllubakkaskóla.


 
	
			


 
						 
						 
						 
						 
						 
						


 
				 
				 
				 
				 
				
 
				 
				 
				