Gærur, glimmer og gaddavír á Ljósanótt
Æfingar eru nú hafnar á sýningunni Gærur, glimmer og gaddavír sem sýnd verður á Ljósanótt í Andrews leikhúsinu en hún er framhald af Með blik í auga sem sló í gegn á síðustu Ljósanótt.
Nú verður tekinn fyrir áratugurinn 1970 - 1980 og eins og yfirskrift sýningarinnar ber með sér ægir þar ýmsu saman í tónlistarstefnum. Meðal flytjenda verða Valdimar Guðmundsson, Hermannssynir, Fríða Dís og Bríet Sunna auk annarra og stórhljómsveit að vanda undir stjórn Arnórs Vilbergssonar. Handritshöfundur og leiðsögumaður verður Kristján Jóhannsson og lofar hann enn betri skemmtun í ár.
Miðasala er hafin og fer fram á midi.is.