Laugardagur 6. apríl 2002 kl. 13:58
Fyrstu tjaldbúarnir mættir!

Fyrstu tjaldbúarnir á tjaldstæðinu Stekk í Njarðvík tjölduðu til einnar nætur í gærkvöldi. Þarna voru á ferð tveir bretar frá Durham í Bretlandi. Þau Martin Cann og Kathy Martys. Þau hafa verið hér á landi í nokkra daga og hjólað um landið. Aðallega hafa þau verið á Suðurlandi og meðal annars farið austur í Vík í Mýrdal og einnig á Gullfoss og Geysi.
Bláa lónið heimsóttu þau um daginn. „Það var átta stiga frost um nóttina og mjög kalt í tjaldinu. Það var því alveg himneskt að fara í heitt lónið og láta sér líða vel,“ sagði Martin í samtali við Víkurfréttir.
Í dag ætluðu þau að fara í hvalaskoðunarferð frá Keflavík en þau fara utan á sunnudag.