Fyrsta fósturbarn Villa og Karenar
Stjarnan í nýjasta myndbandi Of Monsters and Men bjó í Akurhúsum í Garði:
Atli Freyr Demantur hefur að undanförnu vakið mikla athygli fyrir framgöngu sína í nýjasta myndbandi Of Monsters and Men, I Of the Storm. Hann bjó um tíma hér á Suðurnesjum, nánar tiltekið í Akurhúsum hjá Karen Jónsdóttur og Vilhjálmi Einarssyni, sem voru til umfjöllunar í síðasta tölublaði Víkurfrétta. Atli Freyr var fyrsta fósturbarnið sem þau tóku að sér. Í dag er hann búsettur í Danmörku þar sem hann vinnur sem förðunarfræðingur og listamaður. Hann er að fara að gifta sig í lok ársins.
„Ég var nýorðinn 14 ára gamall þegar ég var sendur í fóstur til Karenar og Villa árið 2003. Upprunalega átti ég bara að vera í þrjá mánuði en ég endaði með að vera hjá þeim í tvö ár. Ég var fyrsta fósturbarnið sem kom til þeirra,“ segir Atli Freyr og bætir við að hann hafi lært mjög mikið á þeim tíma. „Það er alveg ótrúlegt hvað heilbrigt og stöðugt umhverfi er mikilvægt á unglingsárunum.“
Upplifði heilbrigt heimilislíf
Atli Freyr rifjar um tímann í Akurhúsum: „Mér líkaði rosalega vel hjá þeim. Ég fékk mikinn áhuga á hestamennsku og við fórum í marga góða túra. Svo spilaði ég fótbolta á kvöldin með börnum þeirra Villa og Karenar og fleiri Garðbúum. Á sumrin fékk ég að vinna í fiski og lærði að þéna mínar eigin tekjur. Mikilvægast var þó að ég fékk að upplifa heilbrigt heimilislíf. Akurhúsa-fjölskyldan á svo stóran part í mér. Ég er þeim alveg afskaplega þakklátur.“ Aðspurður segist Atli Freyr vera miðbæjarrotta í húð og hár, fæddur í Reykjavík. „Það voru því töluverð viðbrigði fyrir mig að heyra ekki lengur í bílum, heldur bara að heyra ekki lengur í bílum heldur bara i öldunum og vindinum í umhverfi Akurhúsa.“
Með eina ferðatösku og stóra drauma
Árið 2011 fannst Atla Frey Ísland vera orðið of lítið fyrir sig. „Mig langaði að upplifa heiminn www.unfairfashion.dk) og í tengslum við Copenhagen Fashion Week.“
og þá var ég í sambandi með færeyskum listamanni sem var búsettur i Danmörku. Einn daginn keypti ég mér stakan miða til Kaupmannahafnar. Flúði Klakann með eina ferðatösku og stóra drauma.“ Þar starfar Atli Freyr fyrst og fremst sem förðunarfræðingur og listamaður. Hann tekur t.a.m. að sér förðunarverkefni fyrir alls kyns myndatökur, kvikmyndir, auglýsingar og önnur sérstök verkefni. „Þrisvar í viku vinn ég hjá M•A•C cosmetics og svo er ég hlut af tískuverkefni sem heitir Unfairfashion og í tengslum við Copenhagen Fashion Week.“
Logandi Facebook síða eftir að myndbandið kom út
Það besta við vinnuna sína segir Atli Freyr vera tækifærin til að fá að ferðast um heiminn, vera skapandi og hafa eldmóðinn fyrir því sem hann er að gera. „Og besta af öllu - að gera það sem þú elskar.“ Spurður um hvernig það hafi komið til að hann var beðinn um að leika í myndbandi Of Monsters and Men segist Atli Freyr hafa verið staddur í Kína. „Ég var að vinna að myndaþátt þegar Nanna Bryndís söngkona hringdi i mig og spurði hvort ég væri ekki til í að leika i nýja myndbandinu þeirra. Auðvitað stökk á það, flaug til Kaupmannahafnar frá Kína og var kominn þangað 12 tímum áður en ég fór svo áfram til Íslands.“ Þar var förinni heitið beinustu leið i stúdíó, Atli Freyr setti sig í karakter og svo beint í tökur. „Þetta var rakalega skemmtileg upplifun og ég hef fengið mikil og góð viðbrögð eftir að myndbandið kom út. Facebook-síðan mín logar.“
Giftir sig í lok ársins
Spurður um framtíðarplön segist Atli Freyr ætla að vera hamingjusamur, eignast fjölskyldu og gera allt sem hann vill. Hann mun flytja til Bandaríkjanna í byrjun næsta árs. „Sjáum hversu langt ég kemst i Los Angeles. Já, svo er ég að fara að giftast unnusta mínum og sjóliðanum Raul Bolivar í lok þessa árs. Ég bara brosi alltaf og vinn mikið og hugsa jákvætt. Þá bara koma hlutirnir til mín,“ segir Atli Freyr kátur að endingu.
VF/Olga Björt
Myndir í einkaeigu Atla Freys.