Fyrirlestur og leiðsögn í boði Listasafns Reykjanesbæjar
Fyrirlestur og leiðsögn verður í boði Listasafns Reykjanesbæjar sunnudaginn 11. október kl. 15:00.
Í nafni listarinnar?
Ímyndum okkur að við stöndum frammi fyrir tveimur hlutum sem líta nákvæmlega eins út. Aðeins annar þeirra er listaverk, en þó líta þeir eins út. Hvernig förum við þá að því að greina muninn? ?Til að velta vöngum yfir þessari spurningu og ýmsum fleiri er varðað hafa umræðuna um réttlætingu listarinnar á síðustu áratugum, mun myndlistarmaðurinn Einar Garibaldi Eiríksson halda fyrirlestur í Bíósal Duushúsa.
Flökkuðæðar - Loftfar
?Eftir fyrirlesturinn mun myndlistarmaðurinn Inga Þórey Jóhannsdóttir leiða gesti um sýningu sína í Listasal Duushúsa. Sýningin Flökkuæðar - Loftfar var opnuð á Ljósanótt 4. sept. s.l. og stendur til 18. október. Þetta er því næst síðasta sýningarhelgi.
Allir eru velkomnir, ókeypis aðgangur.