Fyrir súkkulaðimola í bæjarstjórn?
Þær Kristlaug María Sigurðardóttir og Margrét Óskarsdóttir voru í Krossmóa í Reykjanesbæ í gær og buðu fólki upp á súkkulaðimola á sama tíma og þær kynntu framboð sitt hjá Samfylkingunni í Reykjanesbæ.
Kristlaug María sækist eftir 4. sæti listans en Margrét 4.-6. sæti. Það kemur síðan í ljós í dag hvort súkkulaðið hafi tælt einhverja kjósendur á þeirra band.
Mynd: Kjartan Már Kjartansson frá Securitas fékk súkkulaðimola hjá þeim stöllum. Víkurfréttamynd: Hilmar Bragi Bárðarson