Furðudýr, górilla og margir fleiri í Sandgerðisskóla
Það var mikið fjör í Grunnskóla Sandgerðis í gær þegar fjórði bekkur var með leiksýningu fyrir nemendur og foreldra. Kennarinn Arnoddur Magnús Danks, leikstýrði krökkunum en hann kennir leiklist ásamt mörgu öðru í skólanum. Þessa vikuna hefur foreldrum einnig verið boðið í kennslustundir til að fylgjast með kennsluháttum kennara.
Sýningin hét Furðudýr, górilla og margir fleiri og var þetta samansett úr mörgum ævintýrum sem allir þekkja eins og Öskubusku, Hans og Grétu og Grísunum þrem svo eitthvað sé nefnt. Sýningin var stútfull af gríni og var sífelldur hlátur í áhorfendum en í lokin sungu svo krakkarnir lagið „Ég er furðuverk“ með smá breyttum texta við góðar undirtektir.
Þorbjörg Bragadóttir, textílkennari við skólann, saumaði alla búninga sem notaðir voru en hún hafði gefið skólanum heilan helling af búningum fyrir nokkru síðan.
[email protected]
Arnoddur Magnús Danks, stundum kallaður Oddur Maggi, setur reglulega upp sýningar með krökkunum í skólanum en hann kennir leiklist við skólann.