Sjómannakveðjur 2
Sjómannakveðjur 2

Mannlíf

Fullt hús á hátíðarfundi í Stapa
Mánudagur 1. maí 2006 kl. 22:23

Fullt hús á hátíðarfundi í Stapa

Fjölmenni var á hátíðarfundi stéttarfélaganna sem var haldinn í Stapa í tilefni Alþjóðlegs dags verkamanna. Sjaldan hefur starf stéttarfélaganna verið í jafn miklum brennidepli, þar sem atvinnulíf Suðurnesja hefur verið í uppnámi vegna yfirvofandi brotthvarfs hersins.

Sigfús Rúnar Eysteinsson, formaður Iðnsveinafélags Suðurnesja, setti fundinn en eftir það tók við fjölbreytt hátíðardagskrá þar sem kenndi ýmissa grasa. Ræðumaður dagsins var Ögmundur Jónasson, formaður BSRB, en eftir að hann lauk máli sínu tóku við tónlistaratriði þar sem Gospelkór Suðurnesja og æringjarnir Raggi Bjarna og Þorgeir Ástvaldsson stigu á stokk.

Í lok dagskrár stóðu allir úr sætum og tóku undir þegar Internasjónalinn var sunginn hátt og snjallt.

Að dagskrá lokinni gerðu gestir hlaðborðinu skil, en þar voru á boðstólum ýmis konnar brauðmeti og bakkelsi eins og siður er.

VF-myndir/Þorgils: 1: Guðbrandur Einarsson, kynnir, slítur fundi. 2: Gestir við hlaðborðið glæsilega.

Bílakjarninn
Bílakjarninn