Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Mannlíf

Fullbókað í samtvinnað atvinnuflugmannsnám
Föstudagur 5. ágúst 2016 kl. 06:00

Fullbókað í samtvinnað atvinnuflugmannsnám

Mikil ásókn er í flugnám hjá Keili og er nú fullbókað í samtvinnað atvinnuflugmannsnám hjá Flugakademíu Keilis sem hefst í lok ágúst. Flugakademía Keilis er eini flugskólinn á Íslandi sem býður upp á samtvinnað flugnám til atvinnuflugmannsréttinda. Í þannig flugnámi byrjar flugneminn á fyrsta degi í þjálfun til atvinnuflugmannsskírteinis í stað þess að ljúka fyrst einkaflugmannsréttindum. 

Flugakademía Keilis bauð fyrst upp á samtvinnað atvinnuflugmannsnám haustið 2014 og var þá fullbókað á námskeiðið. Flugakademía Keilis er fyrsti flugskólinn á Íslandi sem hefur fengið samþykki Samgöngustofu (SGS) til að halda samtvinnað (integrated) nám til atvinnuflugmannsréttinda (ATPL Integrated Flight Training Program).

Hingað til hafa flugnemar á Íslandi þurft að ljúka einkaflugmannsréttindum til að mega sitja bóklegt atvinnuflugmannsnámskeið (ATPL). Að þeim loknum þurftu þeir síðan að ljúka bóklegu ATPL námskeiði áður en hægt var að skrá í sig í verkleg námskeið til atvinnuflugmanns- og blindflugsréttinda, sem og að ljúka lágmarks flugtímum til að standast inntökukröfur námskeiðanna.


 

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024