Bygg
Bygg

Mannlíf

FS-ingur vikunnar: Langar að læra sjóntæknifræði
Sunnudagur 15. mars 2015 kl. 11:00

FS-ingur vikunnar: Langar að læra sjóntæknifræði

Guðríður Emma Steinþórsdóttir er FS-ingur vikunnar. Hún er hrædd við próf og er stundum líka flughrædd. 
 
Á hvaða braut ertu? Ég er á Félagsfræðibraut
Hvaðan ertu og aldur? Er frá Keflavík og er 17 ára
Helsti kostur FS? Margbreytilegt námsefni sem getur hentað hverjum einstakling
Áhugamál?  Vera með vinum, kærastanum og fjölskyldu. Líkamsrækt og að ferðast innanlands og utan.
Hvað hræðistu mest? Er hrædd við próf og er stundum flughrædd
Hvaða FS-ingur er líklegur til þess að verða frægur og hvers vegna? Sandra Dögg Winbush því hún er svo metnaðarfull
Hver er fyndnastur í skólanum? Ásdís Rán Kristjánsdóttir
Hvað sástu síðast í bíó?  The Wedding Ringer
Hvað finnst þér vanta í mötuneytið? Góðan mat
Hver er þinn helsti galli? Óþolinmóð
Hvaða þrjú öpp eru mest notuð í símanum hjá þér? Facebook, Snapchat og Instagram
Hverju myndirðu breyta ef þú værir skólameistari FS? Skólamatnum og að kennsla myndi hefjast í fyrsta lagi klukkan níu
Hvaða frasa eða orð notar þú oftast? „Er þetta til prófs?“
Hvernig finnst þér félagslífið í skólanum? Mjög gott 
Hvert er stefnan tekin í framtíðinni? Mig langar að læra sjóntæknifræði í Danmörku
Hver er best klædd/ur í FS? Thelma Rún Birgisdóttir er oft í mjög flottum fötum
 
Eftirlætis:
 
Kennari: Harpa Kristín Einarsdóttir
Fag í skólanum: Náttúrufræði
Sjónvarpsþættir: 100, Vampire Diaries, Modern Family, Friends og Walking Dead
Kvikmynd: Hunger Games
Hljómsveit/tónlistarmaður: Fray, Logic, Script, og Cold Play
Leikari: Leonardo Dicaprio
Vefsíður: Facebook og Youtube aðallega
Flíkin: Gallabuxur og bolur 
Skyndibiti: Ég elska subway
Hvaða tónlist/lag fílarðu í laumi (gulity pleasure)? Logic- Let me go er í algjöru uppáhaldi
 
Bílakjarninn
Bílakjarninn