Atnorth
Atnorth

Mannlíf

FS-ingur vikunnar: Hræðist Grindvíkinga mest af öllu
Sigurður Smári Hansson er FS-ingur vikunnar.
Sunnudagur 10. apríl 2016 kl. 06:00

FS-ingur vikunnar: Hræðist Grindvíkinga mest af öllu

Sigurður Smári Hansson er FS-ingur vikunnar. Hann stundar nám á húsasmíðabraut og er framkvæmdastjóri nemendafélagsins.

Á hvaða braut ertu?
Ég er á húsasmíðabraut.

Bílakjarninn
Bílakjarninn

Hvaðan ertu og aldur?
20 ára Garðbúi.

Helsti kostur FS?
Æðislegt fólk og skemmtilegt félagslíf.

Áhugamál?
Tónlist, leiklist, knattspyrna og margt annað.

Hvað hræðistu mest?
Grindvíkinga…..

Hvaða FS-ingur er líklegur til þess að verða frægur og hvers vegna?
Magnþór Breki mun taka við af Birni Braga sem spyrill Gettu-betur. Þið lásuð það fyrst hér!

Hver er fyndnastur í skólanum?
Heba, ekki spurning!

Hvað sástu síðast í bíó?
The Brothers Grimsby, fáránlega fyndin!

Hvað finnst þér vanta í mötuneytið?
Sóma samlokur.

Hver er þinn helsti galli?
Ég er rosalega kaldhæðinn og það getur verið galli þegar maður talar við fólk sem fattar það ekki, fátt leiðinlegra en þegar maður þarf að útskýra allt sem maður segir.

Hvaða þrjú öpp eru mest notuð í símanum hjá þér?
Facebook, twitter, snapchat.

Hverju myndirðu breyta ef þú værir skólameistari FS?
Að skólinn byrjaði alltaf klukkan 9.

Hvaða frasa eða orð notar þú oftast?
Er farinn að segja „einmitt” rosalega oft núna…veit ekki af hverju.

Hvernig finnst þér félagslífið í skólanum?
Rosalega gott.

Hvert er stefnan tekin í framtíðinni?
Klára húsasmíðina og svo kemur bara í ljós hvað ég geri.

Hver er best klædd/ur í FS?
Marinó minn er alltaf eins og milljón dollarar.

 

Eftirlætis:

Kennari: Gunni Vald.

Fag í skólanum: Stoð.

Sjónvarpsþættir: How to Get Away with Murder eru að koma sterkir inn.

Kvikmynd:  Í augnablikinu er það Deadpool.

Hljómsveit/tónlistarmaður: Ásgeir Trausti er drengur sem ég get ekki hætt að hlusta á.

Leikari: Will Ferrell.

Vefsíður: facebook og twitter.

Flíkin: Morocco búningurinn sem ég keypti í útskriftarferðinni.

Skyndibiti: Villi.

Hvaða tónlist/lag fílarðu í laumi (gulity pleasure)? Everybody - Backstreet Boys.